Færslur: 2020 September
11.09.2020 09:57
Fréttabréf ÁtVR - Haustið 2020
Ágætu félagsmenn ÁtVR
Í ljósi aðstæðna er erfitt að skipuleggja veturinn.
Stjórn ÁtVR hefur ákveðið að senda ekki út haustdagskrá heldur boða
til viðburða þegar færi gefst.
Eins og þið hafið tekið eftir hafa félagsgjöld ekki
verið rukkuð í ár, enda höfum við einungis náð að halda einn
atburð það sem af er ári. Þegar við sprengdum
utan af okkur húsnæðið í safnaðarheimili
Seljakirkju, í goskaffinu.
Allir stjórnarmenn ÁtVR eru tilbúnir að sitja áfram í stjórn þar til
hægt verður að boða til aðalfundar næsta vor, ef félagsmenn setja
sig ekki á móti því.
Til þess að halda okkur í virkni væri gaman að fá sendar frá ykkur myndir og eða myndbönd úr starfi liðinna ára. Hægt er að senda slíkt til Elíasar á netfangið: eyjarnar@gmail.com
Stjórn ÁtVR vill hafa öryggið í fyrirrúmi
en vonast til þess að hægt verði að koma á einhverjum viðburðum sem fyrst.
Njótið nú þess sem haustið hefur upp á að bjóða kæru félagar og sjáumst hress við fyrsta tækifæri.
Stjórn ÁtVR
- 1