20.02.2015 14:17
Óháði söfnuðurinn 65 ára
Vestmannaeyingar eru sérstaklega
boðnir velkomnir til
Hátíðarmessu vegna 65 ára afmælis Óháða safnaðarins.
Í Vestmannaeyjagosinu 1973 átti
söfnuður Landakirkju skjól í kirkju Óháða safnaðarins sem tók vel á móti
Vestmannaeyingum.
Óháða kirkjan var Guðshús safnaðarins á fasta landinu.
Sunnudaginn 22. febrúar kl. 14:00
verður hátíðarmessa þar sem 65 ára afmælis Óháða safnaðarins verður fagnað.
Séra Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari og kór safnaðarins leiðir sönginn
undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.
Séra Karl Sigurbjörnsson
predikar.
Auk þess mun Séra Karl, sem var nývígður prestur til Vestmannaeyja þegar gosið hófst minnast starfa Landakirkju þessa örlagaríku mánuði.
Gissur Páll Gissurarson flytjur
nokkur lög
Matthías Nardeau spilar á óbó.
Veislukaffi verður að lokinni messu, allir velkomnir.
Hér er Kirkja Óháða safnaðarins á korti....