Færslur: 2013 Júlí
30.07.2013 00:04
Undurfagra ævintýr
Undurfagra ævintýr -
aldarminning Árna úr Eyjum
Á dagskrá Ríkisútvarpsins rásar 1 kl. 14:00
mánudaginn 5. ágúst.
Efni þáttarins er aðallega fengið frá Hafsteini G. Guðfinnssyni sem hefur fundið til ýmsar heimildir um Árna Guðmundsson frá Háeyri í Vestmannaeyjum.
Í þættinum segir Hafsteinn frá lífshlaupi Árna úr Eyjum.
Hann skoðar skáldskap hans og rekur vináttu þeirra Árna og Oddgeirs Kristjánssonar, en kornungir menn sórust þeir í fóstbræðralag að fornum hætti.
Fluttir verða textar Árna aðallega við lög Oddgeirs Kristjánssonar.
Flytjendur: Sönghópur ÁtVR undir stjórn Hafsteins Guðfinnssonar.
Birtar eru hljóðritanir af tónleikum sönghópsins, sem ekki hafa heyrst áður.
Þá verða flutt lög og textar sem sjaldan heyrast nú.
Aðrir flytjendur:Guðmundur Jónsson, Diddú, Tríó Glóðir, Ársæll Másson, Birgir Hrafn Hafsteinsson,
Gísli Helgason, Hilmar Sverrisson, Leifur Geir Hafsteinsson, Þórólfur Guðnason og Sigurður Guðmundsson (Siggi á Háeyri), bróðir Árna úr Eyjum.Þess má geta að í upphafi þáttarins heyrist rödd Árna úr Eyjum frá því í október 1946.
23. júní síðastliðinn afhentu afkomendur Árna Skjalasafni Vestmannaeyja handrit Árna.
Umsjón með þættinum hefur Gísli Helgason.
Hér má hlusta á þáttinn í Sarpi Ríkisútvarps:
http://www.ruv.is/sarpurinn/undurfagra-aevintyr-aldarminning-arna-ur-eyjum/05082013-0
- 1