Færslur: 2014 Apríl
23.04.2014 12:17
Tónleikar Sönghóps ÁtVR 2014
Tónleikar Sönghóps ÁtVR
Laugardaginn 26. apríl kl.15
Sönghópur
Átthagafélags Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu (ÁtVR) heldur vortónleika
sína í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg í Reykjavík, laugardaginn 26.
apríl n.k. kl. 15. Tónleikarnir eru að stórum hluta tileinkaðir skáldinu og
lagahöfundinum Ása í Bæ, í tilefni af því að þann 27. febrúar s.l. voru 100 ár
frá fæðingu hans. Einnig verða flutt lög annarra höfunda.
Ási var fæddur í Litla Bæ við Strandveg í Vestmanneyjum 27. febrúar 1914 og
lést 1. maí 1985. Hann skrifaði margar bækur og samdi allskyns kveðskap um
lífíð í Vestmannaeyjum á síðustu öld. Á tónleikunum verður sagt frá lífshlaupi
Ása í Bæ ásamt því að flutt verða lög hans og textar.
Ási samdi mörg ljóð við Þjóðhátíðarlög Oddgeirs Kristjánssonar á
árunum 1950 til 1965. Hann samdi einnig þó nokkuð af lögum sjálfur við eigin
texta og þar á meðal nokkur Þjóðhátíðarlög á tímabilinu frá 1970-1985. Á
tónleikunum verða m.a. flutt lög hans Herjólfsdalur og Sævar í Gröf í glænýjum
kórútsetningum. Með Sönghóp ÁtVR leikur 4 manna hljómsveit en stjórnandi er
Hafsteinn G. Guðfinnsson.
Allir eru velkomnir á tónleikana en aðgangseyrir er 2000 krónur fyrir
manninn.
Þess má einnig geta að laugardaginn 10. maí n.k. kl. 14 mun Sönghópur
ÁtVR halda tónleika í Sólheimakirkju, á Sólheimum í Grímsnesi, fyrir íbúa,
gesti og gangandi og eru allir velkomnir.
Kirkja Óháða safnaðarins við Háteigsveg 56 í Reykjavík á götukorti.
.
- 1