30.04.2019 06:22
Karlakórinn Esja og Karlakór Vestmannaeyja - Tónleikar
Í fyrstu utanlandsferð Esjumanna sigldi kórinn til eyja og gisti í Álsey. Síðan þá hefur hugurinn leitað til Vestmannaeyja og þegar Esjumenn kynntust Karlakór Vestmannaeyja í sjónvarpsþáttunum Kórum Íslands var ljóst að þessir kórar þyrftu að gera eitthvað saman. Nú er komið að því!
Miðaverð er 3.000, frítt fyrir börn að 12 ára.Dagskráin verður sneisafull af klassískum karlakóralögum, Eyjalögum og þekktum dægurlögum. Lofað er mikilli skemmtun.
Miðasala: https://tix.is/is/event/7941/esjan-vestmannaeyjar/
Facebook kynning:
https://www.facebook.com/events/2168175363271673/