Færslur: 2017 Apríl
21.04.2017 14:30
Fyrirlestur 3. hluti - "Lifað með náttúrunni í Eyjum"
Námskeið
um Vestmannaeyjar - 3. hluti
Í Hæðargarði 31, 25. apríl kl. 17:15
Þá er komið að þriðja og síðasta fyrirlestrinum í
námskeiði um Vestmannaeyjar "Lifað með náttúrunni í Eyjum" Helga
Hallbergsdóttir og Hrefna Valdís Guðmundsdóttir segja sögu sex atorkukvenna á
20. öld.
Ef litið er yfir sögur fyrri tíma mætti ætla að í Vestmannaeyjum hefðu eingöngu
búið karlmenn. Grunnur að þeirri velmegun sem við búum við í Eyjum í
dag er þó ekki síður að þakka vinnusemi, fórnfýsi og þrautseigju
þeirra kvenna sem lifðu og dóu í Eyjum.
Helga Hallbergsdóttir sem er með
hagnýta menningarmiðlun og Hrefna Valdís Guðmundsdóttir, þjóðfræðingur,
bregða ljósi á líf og starf sex kvenna - ekki bara í baráttu heldur
líka í náinni samvinnu við náttúruna. Óvíst er hvor þeirra flytur
fyrirlesturinn.
Minnum á ferðina til Vestmannaeyja 14. maí. Sjá nánar hér.
Staður og stund: Þriðji og síðasti fyrirlesturinn í
námskeiðinu um Vestmannaeyjar verður í Hæðargarði 31 kl
17:15.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér: SKRÁ MIG HÉR.
Athugið þáttakan kostar 500 kr.
- 1